Færsluflokkur: Vefurinn

Vinkonur?

Af hverju ætli þarna standi að Ellen DeGeneres líðið eins og Tom Cruise þegar hún fer út með VINKONU sinni? Hvers vegna skrifaði blaðamaðurinn ekki bara KÆRUSTU?
Hann segir jú í lokin að þær séu búnar að vera saman í tvö ár.

Hefði hann notað orðið "vinkona" ef fréttin hefði verið um karlkyns leikara sem væri lægri í loftinu en kærastan sín?

Velti þessu bara fyrir mér...
mbl.is Ellen DeGeneres líður eins og Tom Cruise
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að finna upp e-ð eða taka upp á e-u...

uppáfinningasamur


Aldrei heyrt þetta orð áður, hinsvegar þekki ég orðið UPPÁTEKTARSAMUR sem þýðir að einhver sé duglegur að taka upp á ýmsum hlutum, oft í stríðni eða óþekkt.


mbl.is Vísindamenn agndofa yfir miklum orðaforða páfagauks með húmor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hálka er víða..."

Látum vera þótt blaðamaðurinn hafi valið svolítið undarlegt orðalag í þessari fyrirsögn. Mér finnst hálka ekki vera eitthvað sem maður "finnur" víða á vegum. Annað hvort eru vegir hálir eða ekki hálir, víða um land, punktur, basta.
En að geta ekki fallbeygt frumlagið í þokkabót...æi, þetta er svo klaufalegt!

Hvers vegna var ekki bara hægt að segja "Hált er á vegum víða um land."?

P.S. ég bið forláts á rangri notkun gæsalappa, ég bara kann ekki að gera gæsalappir niðri nema í Instert Symbol í Word! Blush
mbl.is Hálka víða um land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ æ

Sjóðnum vantar...


Hér er ekki við mbl.is að sakast. Sorglegt að sjá yfirlýsingu frá háskólanemum sem er ekki nógu vel prófarkarlesin, en þó undirrituð af öllu þessu fólki. Líklega leggur þetta fólk ekki stund á íslensku, bókmenntafræði eða slík fög.


mbl.is Stúdentar telja þörf á úrbótum hjá LÍN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Leikið sér í snjónum" ?

Er það bara ég eða er eitthvað undarlegt við þessa fyrirsögn? Ég get ekki útskýrt með málfræðilegum rökum hvers vegna mér þykir þetta ekki alveg rétt svo ef einhver þarna getur annað hvort hrakið eða stutt þessa skoðun mína væri það vel þegið. Persónulega hefði ég bara skrifað "Leikið í snjónum"
mbl.is Leikið í snjónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einu sinni, tvisvar og þrisvar...

er talað um Sidney í þessari frétt þegar borgin heitir Sydney. Set þessa frétt hérna sérstaklega af því að ég hef nokkrum sinnum áður séð þessa stafsetningu á borgarheitinu í fréttum mbl.is. Kannski er þetta sérsíslensk útgáfa MBL af nafninu svona eins og við köllum London Lundúnir, Bergen Björgvin o.s.frvs. Mér finnst hinsvegar Sidney ekkert sérstaklega íslenskulegt nafn.
Getur verið að sumir blaðamenn mbl.is séu virkilega svo ungir að þeir séu strax búnir að gleyma Ólympíuleikunum í SYDNEY?

Annað sem angrar mig við þessa frétt er hversu ráðvilltur maður er eftir að hafa lesið hana. Hvað olli óeirðum þarna í desember í fyrra? Og hvers vegna er óttast að sá atburður endurtaki sig núna? Hvaða ungmenni, af hvaða kynþáttum stóðu í þeim átökum? Er að renna upp eitthvað tímabil í Ástralíu þar sem er sérstök hætta á kynþáttaátökum? Eru pólitískar og/eða félagslegar ástæður að baki því?

Ef þessi atriði eru ekki útskýrð fyrir sauðsvörtum almúganum hérna uppi á Íslandi þá hefur þessi frétt óskaplega lítinn tilgang. Það er ekki eins og við flykkjumst í sólarlandaferðir til Ástralíu í desember svo við þurfum í sjálfu sér ekkert að vita að strendur Sydney eigi að verða öruggari en áður. Þessi frétt hafði í upphafi alla burði til að verða áhugaverð frétt um sambúð mismunandi kynþátta í Ástralíu, stöðu innflytjendamála og stjórnarfar í Sydney. Í staðinn höfum við hérna prump-frétt, algerlega óþarfa og vita gagnslausa, nema til að valda óþægindum vegna síendurtekinnar stafsetningarvillu.

Hérna má svo lesa fréttina á síðu The Sydney Morning Herald og fá nánari upplýsingar um hvað málið snýst: http://www.smh.com.au/news/national/police-beach-patrols-to-cool-riot-risk/2006/10/14/1160246357569.html
mbl.is Strendur Sydney vaktaðar til að koma í veg fyrir kynþáttaóeirðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er þessi Dögm?

Dagmar, eins og önnur íslensk nöfn, beygist. Í fyrirsögn, tvisvar í texta og einu sinni í myndatexta er nafnið þó haft óbeygt í eignarfalli. Þetta kallast hroðvirknisleg vinnubrögð, það er lítið mál að fletta þessu upp. Í eignarfalli er það Dagmarar.

Þar fyrir utan: María Fedorovna var rétt beygt, sem er gott. Fréttin illa þýdd og illlæsileg að öðru leiti.


mbl.is Jarðneskar leifar Dagmar keisaraynju fluttar til Rússlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamlar fréttir

Frétt BBC

 

Þessi frétt er síðan í febrúar. Fyrir utan að vera hálf ómerkileg.

 Geta heimilda, MBL.


mbl.is Neyddur til að „kvænast“ geit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beckham í klandri vegna málakunnáttu

Njah...er þetta klandur ekki frekar tilkomið vegna málaVANkunnáttu?

Aldrei heyrt um að hægt sé að lenda í klandri fyrir að kunna of mörg tungumál of vel, maður verður greinilega að fara að passa sig!
mbl.is Beckham í klandri vegna málakunnáttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt veður, mörg veður?

 Everett ekki við eina fjölina feldur

 Feldur? Stofninn er: (að) fella - tvö L, í öllum myndum orðsins.

 

Ég er furðu lostinn yfir gagnkynhneigðum samböndum mínum en ég er það reyndar satt að segja yfir öllum samböndum mínum

Getur maður verið furðu lostinn yfir eigin gerðum? Ég veit ekki, mér þykir þetta undarlegt orðalag, eða þýðing öllu heldur.

 

Veður skipuðust svo hratt í lofti


Hef bara aldrei heyrt talað um veður í fleirtölu, en get þó ekki aftekið að slíkt sé til.
Auk þess er vaninn að segja "Skjótt skipast veður í lofti" en ekki "Hratt skipast..."

Velti fyrir mér hvernig enska setningin hljómaði...


mbl.is Everett ekki við eina fjölina feldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Rauði penninn

Höfundur

Friðmunda Fáfnisdóttir
Friðmunda Fáfnisdóttir
Málfræðilega viðhaldið
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 46

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband